Upcoming Concerts for Emmsjé Gauti
Top Songs By Emmsjé Gauti
Credits
PERFORMING ARTISTS
Emmsjé Gauti
Performer
COMPOSITION & LYRICS
Gauti Þeyr Másson
Songwriter
Þormóður Eiríksson
Composer
PRODUCTION & ENGINEERING
Þormóður Eiríksson
Producer
Lyrics
Sorrí mamma en ég vinn við það að tjá mig
Man þegar þú sast í eldhúsinu og grést
Einstæð með fjögur börn og lán og risavaxið sár
Sem ekkert okkar sér
Þrettán ára þegar hann fór
Nú þarf Gauti að vera stór
Nú þarf Gauti að herða sig
Taka tárin, þerra kinn
En ég misskildi þetta allt, hélt ég þyrfti að sperra mig
Litli karlinn vildi vera kallinn, semja hetjuhandrit
Dáðist af hetjunum í hverfinu, týndu strákunum í kerfinu
Flestir þeirra sluppu lifandi, en nokkrir þeirra liggja í garðinum
En ég er ekki að dæma þig
Nei, sko allt er hey í harðindum
En plís nennirðu að reyna lifa af
Því þessar sögur eru einskis virði
Ef sögumaðurinn sjálfur er farinn burt
Hvirfilbylur
Snýst í hringi og hringi og hringi alveg eins og
Hvirfilbylur
Snýst í hringi og hringi og hringi alveg eins og
Hvirfilbylur
Því ég er algjör fokkin hvirfilbylur
Því ég er algjör fokkin hvirfilbylur
Þegar lífið fór í gang og allt gerðist aðeins hraðar
Sautján ára flutti út, sorry með æsinginn mamma
Stóri bróðir í pælingum, þurfti að fara eitthvað annað
Ég vildi óska þess að ég hefði alltaf verið til staðar
Og ef ég ætti fokkin tímavél, ég færi til baka
Eiga kvöldstund með ykkur, bara borða og spjalla
Og horfa á eitthvað saman, en ég hafði ekki tímaskyn
Hlaupandi undan sjálfum mér já Gauti þurfti að drífa sig
Og ómægad hvað ég sakna
Tíma sem ég eyddi ekki með ykkur því að ég var var varla þarna
Ég var upptekinn af frama
Meðan þið voruð að finna ykkur
Dúllurnar með meingallaða pabbann
Ég myndi drepa fyrir ykkur
Ég kem á fokkin sekúndunni, eina sem þið þurfið er að kalla
Ég elska ykkur svo mikið og ég vona að þið vitið
Að þið eigið alveg risa stóran part í þessu hjarta
Hvirfilbylur
Snýst í hringi og hringi og hringi alveg eins og
Hvirfilbylur
Snýst í hringi og hringi og hringi alveg eins og
Hvirfilbylur
Því ég er algjör fokkin hvirfilbylur
Því ég er algjör fokkin hvirfilbylur
Writer(s): Gauti þeyr Másson, þormóður Eiríksson
Lyrics powered by www.musixmatch.com