Lyrics

Á fyrsta sunnudegi aðventunnar ég ek til kaupmannsins í einum rykk því þó að fjárhirslurnar gerist grunnar ég geri vel við mig í mat og drykk. Ég kaupi sætabrauð og súkkulaði Súpur og ávexti og kjöt og smér Klyfjaður góssi burt ég held með hraði Og hleð í skottið allskyns gúmmelaði þá mega jólin koma fyrir mér. Á öðrum sunnudegi aðventunnar Alhliða hreinsunarstarf á sér stað þá söngperlur ég söngla ýmsum kunnar Og síðan læt ég renna í funheitt bað. Þá allar spjarirnar ég af mér reiti Og öllum deginum við þvotta ver ég skrúbba tærnar, skegg og lubba bleyti ég skef úr eyrum svona að mestu leyti þá mega jólin koma fyrir mér. Á þriðja sunnudegi aðventunnar Andlegu hliðinni ég geri skil En til að virka skulu viskubrunnar Sko vera rakir eða þarumbil. Það stoðar lítt að sitja einn með ekka örlögum heimsins velta fyrir sér En ég verð heimsins mesta mannvitsbrekka á meðan ég fæ bara nóg að drekka þá mega jólin koma fyrir mér. Á fjórða sunnudegi aðventunnar ég æði um húsið til að gera allt fínt En skreytingarnar eru ansi þunnar því árans skrautið virðist mest allt týnt. Ég skvetti sápuvatni á gólf og glugga Og gref upp nokkuð heillegt sængurver Við bústnum rykmaurum ég reyni að stugga Og rið svo þvottinum í næsta skugga þá mega jólin koma fyrir mér. Loks þegar aðfanganna dag að drífur ég dreg fram spariföt og flibbahnapp Svo þegar skyrtukraginn stendur stífur ég stari í spegilinn og gef mér klapp. Því jólin eru tími til að þakka Og taka ofan fyrir þeim sem ber á meðan ég hef matarögn að smakka Og meðan ég fæ risavaxinn pakka þá mega jólin koma fyrir mér.
Writer(s): Gudmundur Kristinn Jonsson, Bragi Valdimar Skulason Lyrics powered by www.musixmatch.com
Get up to 2 months free of Apple Music
instagramSharePathic_arrow_out