Lyrics

Ef þú vilt bíða eftir mér á ég margt að gefa þér, alla mína kossa, ást og trú enginn fær það nema þú Nína átti heima á næsta bæ, ég næstum það ekki skilið fæ, hún var eftir mér alveg óð ég fékk bréf og í því stóð: Ef þú vilt bíða eftir mér á ég margt að gefa þér, alla mína kossa, ást og trú enginn fær það nema þú Ég las það og þaut svo strax af stað, mér stóð ekki á sama, ég segi það. En Nína grét og gekk mér frá, hún gat ei skilið sem ég sagði þá. "Nína, góða gráttu ei, gleymdu mér, ég segi nei. Þú ert enn of ung góða mín og ég get alls ekki beðið þín." Til Reykjavíkur lá mín leið, langan tíma þar ég beið, ég alltaf reyndi, en illa gekk að gleyma bréfinu sem ég fékk. Ef þú vilt bíða eftir mér á ég margt að gefa þér, alla mína kossa, ást og trú enginn fær það nema þú Ég vissi að aldrei fengi ég frið, fyrr en Nínu ég sættist við, því hugurinn stöðugt hjá henni er hún skal víst fá að giftast mér. Ég ók í skyndi upp í sveit, æskustöðvarnar mínar leit. En Nína leit mig ekki á, ég enn ei skil það sem hún sagði þá: "Geiri elskan, gráttu ei, gleymdu mér, ég segi nei. Þú vildir mig ekki veslings flón Því varð ég að eiga vin þinn Jón.
Writer(s): Conway Twitty Lyrics powered by www.musixmatch.com
Get up to 2 months free of Apple Music
instagramSharePathic_arrow_out